ÍSLENSKA

Apple eins (1) árs takmörkuð ábyrgð - iOS

Aðeins fyrir vörur merktar með Apple vörumerkinu

TENGSL LAGA UM NEYTENDAVERND VIÐ ÁBYRGÐ ÞESSA

ÁBYRGÐ ÞESSI VEITIR ÞÉR TILTEKIN LAGALEG RÉTTINDI OG ÞÚ KANNT AÐ HAFA ÖNNUR RÉTTINDI, SEM ERU MISMUNANDI MILLI RÍKJA (EÐA MILLI LANDA EÐA LANDSVÆÐA). APPLE  HVORKI ÚTILOKAR, TAKMARKAR NÉ ÓGILDIR TÍMABUNDIÐ NEIN RÉTTINDI SEM ÞÚ KANNT AÐ HAFA, Þ.M.T. ÞAU SEM KUNNA AÐ STAFA AF ÞVÍ AÐ EKKI ER FARIÐ AÐ ÁKVÆÐUM SÖLUSAMNINGS, NEMA AÐ ÞVÍ MARKI SEM HEIMILT ER SAMKVÆMT LÖGUM. TIL AÐ SKILJA RÉTTARSTÖÐU ÞÍNA TIL HLÍTAR ÆTTIR ÞÚ AÐ KYNNA ÞÉR LÖG BÚSETULANDS ÞÍNS, LANDSVÆÐIS EÐA RÍKIS.

ÁBYRGÐARTAKMARKANIR SEM FALLA UNDIR LÖG UM NEYTENDAVERND

AÐ ÞVÍ MARKI SEM LÖG LEYFA ER SÚ ÁBYRGÐ OG ÞAU ÚRRÆÐI SEM MÆLT ER FYRIR UM Í ÁBYRGÐ ÞESSARI ÞAU EINU SEM UM RÆÐIR OG KOMA ÞAU Í STAÐ ALLRA ANNARRA ÁBYRGÐA, ÚRRÆÐA OG SKILMÁLA, HVORT HELDUR SEM ER MUNNLEGRA, SKRIFLEGRA, LAGALEGRA, BEINNA EÐA ÓBEINNA. AÐ ÞVÍ MARKI SEM VIÐEIGANDI LÖG HEIMILA VÍSAR APPLE FRÁ SÉR ALLRI ÁBYRGÐ, HVORT SEM ER SAMKVÆMT LÖGUM EÐA ÓBEINT, Þ.M.T., ÁN TAKMARKANA, ÁBYRGÐ Á SELJANLEIKA OG HÆFI TIL ÆTLAÐRAR NOTKUNAR OG ÁBYRGÐ VEGNA FALINNA EÐA DULINNA GALLA. AÐ ÞVÍ MARKI SEM EKKI ER HÆGT AÐ VÍSA FRÁ SÉR SLÍKRI ÁBYRGÐ, TAKMARKAR APPLE GILDISTÍMA OG ÚRRÆÐI SLÍKRAR ÁBYRGÐAR VIÐ GILDISTÍMA ÞESSARAR BEINU ÁBYRGÐAR OG, EINS OG APPLE KANN AÐ ÁKVEÐA UPP Á SITT EINDÆMI, VIÐ VIÐGERÐ EÐA SKIPTI EINS OG LÝST ER HÉR AÐ NEÐAN. SUM RÍKI (LÖND OG LANDSVÆÐI) HEIMILA EKKI TAKMARKANIR Á GILDISTÍMA ÓBEINNAR ÁBYRGÐAR (EÐA SKILMÁLA), OG KANN ÞVÍ AÐ VERA AÐ OFANGREIND TAKMÖRKUN GILDI EKKI UM ÞIG.  

HVAÐ FELLUR UNDIR ÁBYRGÐ ÞESSA?

Apple ábyrgist iPhone, iPad eða iPod vélbúnað sem auðkenndur er með Apple vörumerkinu og fylgihluti sem eru í upprunalegum umbúðum („Apple vörur“) fyrir göllum í efni og vinnu miðað við eðlilega notkun, í samræmi við leiðbeiningar sem Apple hefur gefið út, í EITT (1) ÁR frá frá upprunalegum smásölukaupum endanotanda vörunnar („ábyrgðartími”). Útgefnar leiðbeiningar Apple taka til, en takmarkast þó ekki við, upplýsinga í tækniforskriftum, notendahandbókum og  samskipta vegna þjónustu. 

Vinsamlegast athugið: Allar kröfur sem hafðar eru uppi á grundvelli Apple takmörkuðu eins árs ábyrgðarinnar heyra undir skilmála þá sem fram koma í þessu ábyrgðarskjali. 

HVAÐ FELLUR EKKI UNDIR ÁBYRGÐ ÞESSA?

Ábyrgð þessi gildir ekki um vélbúnað sem er ekki Apple vara né neinn hugbúnað, jafnvel þótt hann sé í sömu umbúðum eða seldur með Apple vélbúnaðinum. Framleiðendur, birgjar og útgefendur, aðrir en Apple, kunna að veita þér sína eigin ábyrgð – vinsamlegast hafið samband við þá til þess að nálgast frekari upplýsingar. Þessi ábyrgð nær ekki yfir hugbúnað sem Apple dreifir með eða án Apple vörumerkisins (þ.m.t. án þess að takmarkast við kerfishugbúnað). Vísað er til hugbúnaðarleyfisins sem fylgir hugbúnaðinum um nánari atriði að því er varðar rétt þinn varðandi notkun hans. Apple ábyrgist ekki að virkni vörunnar verði laus við allar truflanir eða villulaus. Apple ber ekki ábyrgð á skaða sem hlýst af því að ekki er farið eftir leiðbeiningum um notkun vörunnar.

Ábyrgð þessi gildir ekki um: (a) einnota vörur svo sem rafhlöður eða hlífðarhúð sem gert er ráð fyrir að eyðist með tímanum nema bilun hafi orðið vegna galla í efni eða vinnu; (b) útlitsskemmdir, þ.m.t. en ekki takmarkað við rispur, dældir og brotið plast á portum; (c) skemmdir af völdum notkunar með öðrum vörum; (d) skemmdir af völdum slysa, misnotkunar, rangrar notkunar, snertingar við vökva, eldsvoða, jarðskjálfta eða annarra ytri áhrifa; (e) skemmdir af völdum notkunar utan við leyft eða tilætlað notkunarsvið sem Apple tilgreinir; (f) skemmdir af völdum viðhalds (þ.m.t. uppfærslna og stækkana) sem framkvæmt er af aðila sem er ekki fulltrúi Apple eða viðurkenndur þjónustuaðili Apple; (g) Apple vöru sem hefur verið breytt til að breyta virkni eða getu án skriflegs samþykkis Apple; (h) galla vegna eðlilegs slits og notkunar eða annarra eðlilegra aldursmerkja vörunnar, og hún gildir ekki (i) ef hvers konar raðnúmer Apple vörunnar hefur verið fjarlægt eða gert ólæsilegt.

MIKILVÆG TAKMÖRKUN Á ÞJÓNUSTU FYRIR iPHONE OG iPAD.

Apple getur takmarkað ábyrgðarþjónustu fyrir iPhone og iPad við það land þar sem Apple eða viðurkenndir söluaðilar þess seldu Apple vöruna upprunalega.

ÁBYRGÐ ÞÍN

ÞÚ ÆTTIR AÐ TAKA REGLUBUNDIN ÖRYGGISAFRIT AF ÞEIM UPPLÝSINGUM SEM GEYMDAR ERU Á GEYMSLUMIÐLI APPLE VÖRU ÞINNAR TIL AÐ VERNDA INNIHALDIÐ OG SEM VARÚÐARRÁÐSTÖFUN VEGNA MÖGULEGRAR BILUNAR. 

Áður en varan er afhent til ábyrgðarþjónustu, getur Apple eða fulltrúar þess, krafið þig um að sanna atriði er varða kaupin, svara spurningum til að greina möguleg vandamál og fylgja ábyrgðarferlinu til að fá ábyrgðarþjónustu. Áður en þú afhendir Apple vöruna þína til að fá ábyrgðarþjónustu ættir þú að taka sérstakt öryggisafrit af innihaldi geymslumiðilsins, fjarlægja allar persónulegar upplýsingar sem þú vilt vernda og gera öll lykilorð óvirk.

VIÐ ÁBYRGÐARÞJÓNUSTU VERÐUR GÖGNUM SEM VARA ÞÍN INNIHELDUR EYTT OG GEYMSLUMIÐILLINN ENDURFORSNIÐINN. APPLE OG FULLTRÚAR ÞESS BERA EKKI ÁBYRGÐ Á HUGBÚNAÐI, GÖGNUM EÐA ÖÐRUM UPPLÝSINGUM SEM KUNNA AÐ GLATAST Í GEYMSLUMIÐLINUM EÐA NOKKRUM ÖÐRUM HLUTA APPLE VÖRUNNAR SEM ER ANDLAG ÞJÓNUSTUNNAR.

Að lokinni ábyrgðarþjónustu verður Apple varan þín eða  útskiptivaran endursend þér með sömu uppsetningarstillingum og þegar hún var keypt í upphafi, með fyrirvara um viðeigandi uppfærslur. Apple kann að setja upp uppfærslur á kerfishugbúnaðinum sem hluti af ábyrgðarþjónustu til að koma í veg fyrir að vélbúnaðurinn snúi aftur í fyrri útgáfu kerfishugbúnaðarins. Forrit frá þriðju aðilum sem sett hafa verið upp í Apple vöru þinni kunna að vera ósamhæf Apple vörunni vegna uppfærslu á kerfishugbúnaðinum. Þú berð ábyrgð á að setja upp allan annan hugbúnað, gögn og upplýsingar. Þessi ábyrgð nær ekki til endurheimta og enduruppsetningar annarra hugbúnaðarforrita, gagna og upplýsinga.

Mikilvægt: Opnið ekki Apple vöruna. Ef þessi Apple vara er opnuð getur það valdið skemmdum sem ábyrgð þessi nær ekki til. Aðeins Apple eða viðurkenndur þjónustuaðili Apple skal sinna viðhaldi á þessari Apple vöru.

HVAÐ MUN APPLE GERA EF EKKI ER FARIÐ AÐ SKILMÁLUM ÁBYRGÐARINNAR?  

Ef Apple eða viðurkenndur þjónustuaðili fær frá þér gilda kröfu innan gildistíma ábyrgðarinnar, mun Apple, eftir eigin ákvörðun (1) gera við Apple vöruna og nota til þess nýja eða uppgerða hluti sem eru jafngildir upprunalegum hlutum hvað varðar nothæfi og áreiðanleika, (2) skipta út Apple vörunni fyrir annað eintak sem er a.m.k. jafngilt nýju eintaki hvað varðar nothæfi og áreiðanleika, eða (3) endurgreiða kaupverð vörunnar gegn viðtöku Apple vörunnar. 

Apple kann að fara fram á að þú skiptir um hluti sem notandi getur sett upp sjálfur eða vörur. Varahlutur eða vara, þ.m.t. hlutur sem notandi getur sjálfur sett upp, sem hefur verið settur upp í samræmi við leiðbeiningar frá Apple,  öðlast ábyrgð sem varir annað hvort það sem eftir er af ábyrgðartíma upprunalegu vörunnar eða í níutíu (90) daga frá dagsetningu útskiptanna eða viðgerðarinnar, hvort sem veitir þér lengri ábyrgðartíma. Þegar vöru eða hlut er skipt út, eða endurgreiðsla á sér stað, verður varan eða hluturinn sem þú færð í staðinn þín eign og útskipti eða endurgreiddi hluturinn eign Apple.

HVERNIG Á AÐ NÁLGAST ÁBYRGÐARÞJÓNUSTU?

Skoðið neðangreind hjálpargögn á netinu áður en leitað er eftir ábyrgðarþjónustu. Ef varan virkar enn ekki rétt eftir að þessi hjálpargögn hafa verið notuð hafið þá samband við fulltrúa Apple, eða þegar við á, smásöluverslun í eigu Apple eða viðurkenndan þjónustuaðila Apple með því að nota upplýsingarnar sem veittar eru hér að neðan. Fulltrúi frá Apple, eða viðurkenndur þjónustuaðili mun ákvarða hvort varan þarfnast þjónustu og, ef svo er, upplýsir þig um hvernig Apple mun veita hana. Ef haft er samband við Apple símleiðis getur annar kostnaður bæst við eftir því hvaðan hringt er.

Vísað er til upplýsinga á netinu hér að neðan  um hvernig nálgast megi ábyrgðarþjónustu.  

VALMÖGULEIKAR VEGNA ÁBYRGÐARÞJÓNUSTU

Apple mun veita ábyrgðarþjónustu með einni af eftirfarandi aðferðum eða fleiri:

(i) Þjónusta sem veitt er á staðnum. Þú getur komið með vöruna í smásöluverslun í eigu Apple eða til viðurkennds þjónustuaðila Apple þar sem þjónusta er veitt á staðnum. Þjónustan verður veitt á staðnum, eða að öðrum kosti getur smásöluverslunin í eigu Apple eða viðurkenndur þjónustuaðili Apple sent vöruna til viðgerðarverkstæðis Apple til viðgerðar. Þegar þér er tilkynnt að þjónustunni sé lokið, getur þú þá þegar endurheimt Apple vöruna úr smásöluversluninni í eigu Apple eða frá viðurkenndum þjónustuaðila Apple, eða Apple varan verður send beint til þín úr viðgerðarverkstæðinu.

(ii) Sendingarþjónusta. Telji Apple að Apple vara þín sé tæk til sendingarþjónustu, mun Apple senda þér fyrirframgreidd farmbréf og, ef það á við, umbúðir, til að gera þér kleift að senda vöruna á viðgerðarverkstæði Apple eða á viðurkenndan þjónustuaðila Apple í samræmi við leiðbeiningar Apple. Þegar þjónustunni er lokið, mun Apple viðgerðarverkstæðið eða viðurkenndi þjónustuaðilinn skila búnaðinum sem fellur undir ábyrgðarþjónustu til þín. Apple mun greiða sendingarkostnað ef öllum leiðbeiningum er fylgt. 

(iii) Sjálfsþjónusta. Sjálfsþjónusta gerir þér kleift að gera við Apple vöruna þína sjálfur. Sé slík þjónusta möguleg fer hún fram með eftirfarandi hætti.

(a) Sé um að ræða sjálfsþjónustu þar sem endursenda þarf upprunalegu vöruna eða hlutinn getur Apple krafist heimildar til skuldfærslu af kreditkortareikningi sem tryggingu fyrir smásöluverði vörunnar eða varahlutarins sem þú færð sendan í skiptum og tilheyrandi flutningskostnaði. Getir þú ekki útvegað kreditkortaheimild kann sjálfsþjónusta ekki að standa þér til boða og mun Apple þá bjóða upp á þjónustuna með öðrum hætti. Apple mun senda þér útskiptivöru eða hlut með leiðbeiningum um uppsetningu, ef við á, og fyrirmæli um endursendingu útskiptivörunnar eða hlutarins. Ef þú fylgir leiðbeiningunum fellir Apple heimild sína til skuldfærslu af kreditkortareikningi úr gildi þannig að engin skuldfærsla verður framkvæmd vegna vörunnar eða hlutarins né vegna flutningskostnaðar. Ef þú skilar ekki útskiptu vörunni eða hlutnum eins og mælt er fyrir um eða varan eða hluturinn sem skipt er út fellur ekki undir ábyrgðarþjónustu mun Apple láta skuldfæra heimilaða fjárhæð af kreditkortareikningnum. 

(b) Sé um að ræða sjálfsþjónustu þar sem ekki þarf að endursenda útskiptivöruna eða hlut mun Apple senda þér endurgjaldslaust útskiptivöru eða hlut ásamt leiðbeiningum um uppsetningu, ef við á, og fyrirmæli um ráðstöfun á útskiptivörunni eða hlutnum.

(c) Apple ber ekki ábyrgð á launakostnaði sem fellur á þig vegna sjálfsþjónustunnar. Þurfir þú á frekari aðstoð að halda, hafðu samband við Apple í símanúmerinu sem skráð er hér að neðan.

Apple áskilur sér rétt til að breyta því hvernig það veitir þér ábyrgðarþjónustu, og hvort að Apple vara þín sé tæk til að fá tiltekna þjónustutegund. Þjónustan takmarkast við þá möguleika sem eru fyrir hendi í landinu þar sem eftir henni er óskað. Þjónustumöguleikar, fáanlegir hlutir og viðbragðstími getur verið mismunandi milli landa. Þú gætir þurft að greiða sendingarkostnað ef ekki er hægt að veita þjónustu vegna Apple vörunnar í því landi þar sem hún er staðsett. Leitir þú eftir þjónustu í landi sem er ekki landið þar sem varan var upprunalega keypt, þarft þú að fara að gildandi lögum og reglum um innflutning og útflutning og greiða tolla, virðisaukaskatt og aðra skatta og gjöld eins og við á. Þegar alþjóðleg þjónusta býðst, kann Apple að gera við eða skipta út vörum eða hlutum fyrir sambærilegar vörur eða hluti sem uppfylla staðbundna staðla.

TAKMÖRKUN ÁBYRGÐAR

MEÐ ÞEIM UNDANTEKNINGUM SEM GETIÐ ER UM Í ÞESSARI ÁBYRGÐ OG AÐ ÞVÍ MARKI SEM LÖG LEYFA BER APPLE EKKI ÁBYRGÐ Á BEINU, SÉRSTÖKU, ÓBEINU EÐA AFLEIDDU TJÓNI VEGNA BROTS Á ÁBYRGÐARSKILMÁLUM EÐA SKILYRÐUM, NÉ SKV. NEINUM ÖÐRUM LAGASKILNINGI, Þ.M.T., ÁN ÞESS AÐ TAKMARKAST VIÐ, AFNOTAMISSI, TEKJUTAP, TAP Á RAUNVERULEGUM EÐA FYRIRSJÁANLEGUM HAGNAÐI (Þ.M.T. TAP Á HAGNAÐI AF SAMNINGUM), TAP Á PENINGAAFNOTUM, TAP Á FYRIRSJÁANLEGUM SPARNAÐI, VIÐSKIPTATAP, TAP Á TÆKIFÆRUM, TAP Á VIÐSKIPTAVILD, TAP Á ORÐSTÍR, TAP, SKEMMDIR Á, VÁSETNINGU EÐA SPILLINGU GAGNA EÐA ÓBEINT EÐA AFLEITT TAP AF HVERS KONAR VÖLDUM, ÞAR MEÐ TALIÐ VEGNA ENDURNÝJUNAR Á BÚNAÐI OG EIGNUM, HVERS KONAR KOSTNAÐUR AF ENDURHEIMTUM, FORRITUN EÐA ENDURGERÐ FORRITS EÐA GAGNA SEM GEYMD ERU Í EÐA NOTUÐ MEÐ APPLE VÖRUNNI OG HVERS KYNS MISBRESTUR Á AÐ TRÚNAÐAR SÉ GÆTT UM GÖGN SEM GEYMD ERU Í VÖRUNNI. 

OFANGREINDAR TAKMARKANIR GILDA EKKI UM KRÖFUR VEGNA DAUÐSFALLA EÐA SLYSA Á FÓLKI, NÉ HVERS KYNS ÁBYRGÐ SKV. LÖGUM VEGNA HÁTTSEMI EÐA ATHAFNALEYSIS AF ÁSETNINGI OG/EÐA STÓRKOSTLEGU GÁLEYSI. APPLE VÍSAR FRÁ SÉR ÁBYRGÐ Á HVERS KYNS STAÐHÆFINGUM ÞESS EFNIS AÐ ÞAÐ GETI GERT VIÐ VÖRU SEM ÁBYRGÐ ÞESSI NÆR TIL EÐA SKIPT UM VÖRU ÁN HÆTTU FYRIR EÐA TAPS Á UPPLÝSINGUM SEM GEYMDAR ERU Í APPLE VÖRUNNI.

SUM RÍKI (LÖNG OG LANDSVÆÐI) HEIMILA EKKI TAKMARKANIR EÐA UNDANÞÁGUR FRÁ ÁBYRGÐ Á ÓBEINU EÐA AFLEIDDU TJÓNI, OG ÞVÍ KUNNA OFANGREINDAR TAKMARKANIR EKKI AÐ EIGA VIÐ UM ÞIG. 

FRIÐHELGI EINKALÍFS. 

Apple varðveitir og notar upplýsingar um viðskiptavini í samræmi við persónuverndarstefnu sína um viðskiptavini, sem hægt er að nálgast á www.apple.com/legal/warranty/privacy.

ALMENNT

Engum endursöluaðila, umboðsaðila eða starfsmanni Apple er heimilt að breyta, framlengja eða bæta við þessa ábyrgðaryfirlýsingu. Þótt eitthvert ákvæði sé talið ólöglegt eða óframfylgjanlegt skal það ekki hafa áhrif á eða skerða lögmæti eða framfylgjanleika annarra ákvæða. Um ábyrgð þessa gilda lög þar sem Apple varan er keypt og skal túlka hana samkvæmt þeim. Apple er auðkennt í lok þessa skjals eftir því landi eða landsvæði þar sem varan var keypt. Apple, eða arftaki þess, er ábyrgðarveitandi samkvæmt ábyrgð þessari.

UPPLÝSINGASÍÐUR.

Nánari upplýsingar er að finna á eftirfarandi síðum:

Upplýsingar um aðstoð og þjónustu á heimsvísu

http://www.apple.com/support/country

Viðurkenndir dreifingaraðilar

http://support.apple.com/kb/HT1434

Viðurkenndir þjónustuaðilar Apple

http://support.apple.com/kb/HT1937 

http://support.apple.com/kb/HT1434

Apple verslanir

http://www.apple.com/retail/storelist/

Apple stuðningur og þjónusta

http://www.apple.com/support/contact/phone_contacts.html

Apple viðbótarstuðningur

http://www.apple.com/support/country/index.html?dest=complimentary


ÁBYRGÐARAÐILAR Á SVÆÐI EÐA LANDI ÞAR SEM VARAN VAR KEYPT

Evrópa, Mið-Austurlönd og Afríka

Öll lönd

Apple Distribution International

Hollyhill Industrial Estate Hollyhill, Cork, Republic of Ireland


© 2012 Apple Inc. Öll réttindi áskilin. Apple og Apple kennimerkið eru vörumerki Apple Inc., skrásett í Bandaríkjum Norður-Ameríku og öðrum löndum. 

060912 iOS Warranty Icelandic v1.0